Aðalsíða

 Fréttir

 Fyrirtækið

 RS-Vín

 Snyrtivörur

 Rafmagn


 

 

     
 

8 Október 2007

Tempus Two fær 4 glös

Vínsmakkari DV Pálmi Jónsson skrifar vel um Tempus Two Vini Vale Shiraz þann 21. September síðastliðin.

Hann gefur víninu fjögur glös af fimm mögulegum.

"Í munni er pipar, plómur og brómber með karmellukeim af tólf mánuðum í eikartunnum. Mjög kraft- og bragðmikið, kröfuhart vín sem reyndist vel með villibráð og sterkum ostum".

Tempus Two fæst í reynslubúðum ÁTVR Kringlunni og Heiðrúnu og kostar 1930 kr.

                                            

1 Október 2007

90 stig hjá Robert Parker.

Hið frábæra og kraftmikla rauðvín frá Suður Afríku, Graham Beck Shiraz var að fá góða dóma hjá hinum áhrifamika og heimsþekkta vínsmakkara Robert Parker.

Graham Beck Shiraz fékk 90 stig sem er frábær árangur.

Þetta sannar enn og aftur gæði vínanna frá Graham Beck og að þau eru að stimpla sig inn sem ein af bestu vínum Suður Afríku.

                                          

7 September 2007

Lucien Albrecht í Morgunblaðinu

Steingrímur Sigurgeirsson var með umfjöllun um Alsace vín í Morgunblaðinu 24 Ágúst síðastliðinn. Að sjálfsögðu var fjallað um Lucien Albrecht vínin og tvö þerra tekin út og smökkuð og voru það Pinot Gris Reserva og Riesling Reserva.

Frábært skor fyrir þessi frábæru vín.

Hér kemur umfjöllun Steingríms:

Lucien Albrecht Riesling Reserva "Hreinn, tær og þægilegur riesling. Mild sítrusangan, greip og hunang. Milliþungt í munni með fínu jafnvægi. Reynið með grilluðum humar. 89/1009

/100

Lucien Albrecht Pinot Gris Reserva "Þægilegur sætur ávöxtur, blóm og möndlukaka í nefi, í munni þykkur með þægilegri ávaxtasætu, reyk og fínlegri sýru. Reynið með með t.d. vöndumðum taílenskum mat. 90/100

                                         

 

7 Ágúst 2007

Sumarvínin valin í tímaritinu Ísafold

Tímaritið Ísafold var með veglaga útlistun á sumarvínum sem eiga það öll sameiginglegt að vera létt og frískandi og henta vel í sumarblíðunni.

Tvö vín frá okkur voru valinn í umfjöllun þessa og fengu þau bæði mjög góða dóma og voru það Suður Afríku vínið Graham Beck Waterside Chardonnay og svo var það Ástralíu vínið McGuigan GTR.

Það er vínsmakkarinn Stefán Guðmundsson sem sér um umfjöllun þessa í Ísafold.

Bæði þessi vín eru í reynslusölu hjá ÁTVR og fást í Heiðrúnu og Kringlunni.

                                                       

                                  Graham Beck                       McGuigan GTR

                                  Waterside

   

2 Ágúst 2007

Ný og spennandi Spænsk vín í ÁTVR

Þann 1 ágúst hóf í sölu hjá ÁTVR 3 ný Spænsk vín frá okkur.

Um er að ræða tvö rauðvín annað frá hinu stórkostlega svæði Ribera Del Duero og hitt er frá hinu feikivinsæla svæði Rioja og hvítvínið kemur frá Rueda og er vín sem er gert eingöngu úr Verdejo þrúgunn.

Þessi vín fást í Reynslubúðum ÁTVR í Heiðrúnu og Kringlunni og eru á virkilega góðu verði og þá sérstaklega Dominio de Nogara frá Ribera del Duero.

  •    Condesa Eylo Verdejo    1490 kr
  •    Luis Canas Crianza         1600 kr     
  •    Dominio de Nogara         1600 kr   

 

25 Apríl 2007

Góð skrif í Morgunblaðinu um Graham Beck vínin

                                    

                                         

Víngagnrýnandi Morgunblaðsins Steingrímur Sigurgeirsson smakkaði vínin frá Graham Beck og fjallaði um þrjú þeirra föstudaginn 30 Apríl.

  • Graham Beck Family Vineyards "Þétt og nokkuð tannískt með lakkrískeim og reyk í lokin" 88 stig af 100
  • Graham Beck Cabernet Sauvignon "Allreykt, kryddað í munni og tannínmikið" 88 stig af 100
  • Graham Beck Shiraz " Vínið sem stóð upp úr, mikill ávöxtur, kaffi og súkkulaði með krydduðu-pipruðu yfirbragði. Margslungið, eikað langt og mjúkt tannín". 89 stig af 100

 

5 Mars 2007

Þemadagar í Vínbúðunum

Nú standa yfir í Vínbúðum ÁTVR þemadagar og er áherslan þar á vín frá Bandaríkjunum og Argentínu.

RS-VÍN tilnefndi þrjú stór og kraftmikil vín sem fulltrúa okkar á þessum dögum og er það eftirfarandi vín:

  • Alta Vista Alto                                                     4700 kr 

                           

  • Kenwood Jack London Cabernet Sauvignon     2800 kr
  • Kenwood Jack London Zinfandel                       2660 kr

Alta Vista vínin eru mörgum vel kunn og er Alto vínið frá þeim að mörgum talið eitt allra besta vín Argentínu.

Kenwood vínin eru búin að vera í Íslandi í um 2 ár og hefur Jack London Cab/Sauv. verið í vínbúðunum þann tíma en Jack London Zinfandel var sérstaklega skráð inn fyrir þessa þemadaga vínbúðana.

                                          

5 Janúar 2007

Bestu vínin 2006 á Smakkarinn.is

Graham Beck Railroad Red lenti í þriðja sæti í vali www.smakkarinn.is á bestu vínum ársins 2006.

Ef vitnað er í orð Stefáns Guðjónssonar þá segir hann m.a. "Þetta vín er án efa bestu kaupin í ríkinu í dag".

Lýsing Stefáns á víninu er eftirfarandi: "Ristað brauð, krydd og mynta í nefi. Tannínríkt vín með ristuðu brauði, myntu, pipar og sólber. Eftirbragðiði er meðallangt og gott".

Graham Beck Railroad red kostar 1290 kr í ÁTVR og fæst í Heiðrúnu og Kringlunni frábær kaup á frábæru víni.

                                            

20. nóvember 2006

Hátíðarvínin í ÁTVR á lækkuðu verði

Nú fyrir helgi hófust þemadagar í Vínbúðum ÁTVR þar sem lögð er áhersla á vínin með jólamatnum.

RS-VÍN mátti tilnefna 3 vín og eru þau vín eftirfarandi:

  • Graham Beck Railroad Red                Tilboðsverð 1190 kr
  • McGuigan Black Label Shiraz             Tilboðsverð 1100 kr
  • Tempus Two Vini Vale Shiraz            Tilboðsverð 1690 kr

 

13. nóvember 2006

Tinto de Verano Limon í Kjarna

Hinn frábæri ferski drykkur Tinto de Verano Limon náði því marki um seinustu mánaðarmót að fara í Kjarnasölu hjá ÁTVR.

Kemur Tinto de Verano þá til með að vera til í 6 vínbúðum í stað tveggja reynslubúða.

Tinto de Verano Limon er í 1500ml flösku og kostar aðeins 790 kr.

Frábær kaup í drykk sem nýtur sín best ískaldur, með klaka og sítrónusneið.

                                        

                                          

                                 Tinto de Verano Limon 1500ml

                                                      

 

4. n óvember 2006

Graham Beck vika á Vínbarnum

Vikuna 2-9 Nóvember verða vín frá Suður Afríska vínframleiðandanum Graham Beck í hávegum höfð á Vínbarnum. Gefst gestum kostur á að smakka öll þau vín frá Graham Beck sem í boði eru á Íslandi á góðu verði.

Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast þessum frábæru vínum.

                                           

26. október 2006

Glengoyne aftur fáanlegt á Íslandi

Viskýframleiðandinn Ian Mcleod, sem RS-VÍN hefur verið i samstarfi við í mörg ár, festi nýverið kaup á áfengisgerðinni Glengoyne sem er af mörgum talin ein sú fallegasta í Skotlandi.

Glengoyne framleiðir hágæða single-malt viský sem hafa í gengum tíðina fengið mikið lof viskýunnenda um allan heim.

Við hjá RS-VÍN erum mjög lukkulegir með að hafa fengið þessi frábæru viský og hlakkar mikið til að kynna þau fyrir kröfuhörðum Íslenskum Viský áhugamönnum.

Til að byrja með verða þrjár tegundir til í sérvöruverslunum ÁTVR en hver veit nema fleiri bætist við þegar fram líða stundir.

                                  

                                        Glengoyne 10, 17 og 21

 

25. október 2006

Graham Beck vínin frá Suður Afríku komin til landsins

Enn bætist í vínflóruna hjá okkur og nýjasti framleiðandinn sem við höfum hafið samstarf við er Graham Beck frá Suður Afríku.

Þetta eru kraftmikil vín sem koma til með að falla Íslenskum neytandum vel í geð.

Vínin hafa verið að fá mjög góða dóma hér á landi og var Railroad Shiraz/Cabernet valið bestu kaupin á www.smakkarinn.is og segir í m.a. greininni

"það er gaman að sjá að einn skemmtilegasti vínframleiðandi Suður Afríku skuli vera komin til Íslands"

Vínin frá Graham Beck á Íslandi eru þessi:

  • Graham Beck Waterside Chardonnay
  • Graham Beck Railroad
  • Graham Beck Family Vinyard                                       
  • Graham Beck Cabernet Sauvignon
  • Graham Beck Shiraz
  • Graham Beck The Ridge Syrah

Nú er um að gera að prufa þessi frábæru vín sem fást í Heiðrúnu og Kringlunni.

 

4. mars 2006.

ALSACE VIN FRÁ LUCIEN ALBRECHT.

Þessi frábæru vín frá Lucien Albrecht hafa fengi góðar viðtökur á Íslandi.

Í vínbúðum ÁTVR eru fáanlega eftirfarandi tegundir.

  • Lucien Albrecht Pinot Gris Reserva.
  • Lucien Albrecht Gewurtzraminer Reserva.

-----------------------------------------------------------------------------------------------

15. febrúar 2006

Kenwood vínin til Íslands

Frá Sonoma í Californiu koma þessi heimsþekktu vín frá Kenwood Vineyards sem verða fáanleg í vínbúðum ÁTVR frá og með 1 mars.

Þau vín sem íslenskir neytendur geta keypt eru:

  • Kenwood Vintage White
  • Kenwood Vintage Red
  • Kenwood Yulupa Shiraz
  • Kenwood Yulupa Zinfandel
  • Kenwood Russian River Pinot Noir
  • Kenwood Jack London Cabernet Sauvignon

Meira um þessi frábæru vín á heimasíðu framleiðanda:

www.kenwoodvineyards.com

-------------------------------------------------------------------------------------------------

14. febrúar 2006

De Martino valinn besti vínframleiðandi Chile 2005

Hin frábæri vínframleiðandi De Martino, var valin besti vínframleiðandi Chile fyrir árið 2005. Vín sem eru í boði í verslunum ÁTVR eru eru eftirtalin:

 

 
Eldri fréttir
 
 

Rafkóp Samvirki ehf - Dalvegur 16d - 201 Kópavogur
      Sími: 545-0600 - Fax  : 545-0601 - heildsala@samvirki.is